Fjaðrárgljúfur

Mynd: Daniel F. Jonsson

Mynd: Daníel F. Jónsson

Hluti Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi var friðlýstur þann 11. maí 2024 sem náttúruvætti en friðlýsta svæðið er um 0,15 ferkílómetrar að stærð. Náttúruvættið hefur um árabil verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á ferð um suðurland og liggur gönguleið meðfram gljúfrinu að austan ásamt því sem útsýnispallur er við ofanvert gljúfrið.

Fjaðrárgljúfur er um 1,5 km á lengd og mesta dýpt um 100 m. Það er gott dæmi um virk ferli landmótunar sem hófst í lok síðustu ísaldar fyrir um 10.000 árum og er enn í gangi. Ofan við Fjaðrárgljúfur eru malarhjallar sem benda til þess að jökullón hafi myndast fyrir framan hörfandi jökul og vegna fyrirstöðu sem lá efst í núverandi gljúfri. Lónið hefur fyllst tiltölulega fljótt upp af framburði, en vatnsmiklar og aurugar jökulár áttu síðar auðvelt með að rjúfa sér farveg í undirliggjandi berggrunn úr móbergi. Innst í Fjaðrárgljúfri eru fossar og þó að Fjaðrá sé mun kraftminni en vatnsmiklu jökulárnar í lok ísaldar, þá er landmótun gljúfursins enn í gangi.



Fjaðrárgljúfur hefur mikið fræðslugildi er varðar virka landmótun, þar er gott aðgengi og er svæðið vinsæll áningarstaður ferðamanna.

Auglýsing um friðlýsingu Fjaðrárgljúfurs í Skaftárhreppi

Kort af svæðinu

Umsagnir við kynningu á áformum um friðlýsingu Fjarðárgljúfurs