Umsókn um breytingu á starfsleyfi - Malbikunarstöðin Höfði
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn um breytingu á starfsleyfi frá Malbikunarstöðinni Höfða fyrir starfsstöð þeirra í Hafnarfirði.
Sótt er um breytingar vegna frárennslis. Á næstunni verður unnin tillaga að breytingu á starfsleyfinu og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.