Stök frétt


Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir FISK Seafood ehf. Um er að ræða landeldi þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 600 tonn á hverjum tíma. FISK Seafood ehf. ( áður leyfi Hólalax ehf.) hefur verið með 600 tonna leyfi og er því um endurnýjun að ræða. 

Umhverfisstofnun telur að mengun verði óveruleg m.t.t umfangs stöðvarinnar en frárennsli er leitt í settjörn og því næst í viðtakann sem er Hjaltadalsá. 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 19. október 2020. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Meðfylgjandi má sjá tillögu að starfsleyfi ásamt umsókn rekstraraðila:

Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi FISK Seafood ehf.