Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Bleikju ehf. um starfsleyfi vegna landeldis á allt að 100 tonnum laxfiska á hverjum tíma á Laugum Landsveit.
Í framhaldi verður unnin tillaga að starfsleyfinu og gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur þegar hún liggur fyrir.
Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.