Handhafabreyting, starfsleyfi fyrir fisk- og seiðaeldi
Umhverfisstofnun hefur afgreitt umsókn Veiðifélags Eystri-Rangár og Bleikju ehf. um að starfsleyfi til reksturs fisk- og seiðaeldis, annað en sjókvíaeldi, að Laugum, Landsveit, verði fært yfir á Bleikju ehf.
Engar efnislegar breytingar voru gerðar á starfsleyfinu aðrar en að starfsleyfið hefur nú verið fært á nýjan rekstraraðila Bleikju ehf.