Umhverfisstofnun var lögð niður 31. desember 2024. Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi.

Stök frétt

Umhverfisstofnun var lögð niður 31. desember 2024. Þann 1. janúar 2025 tóku Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun til starfa.

Það má búast við einhverri skerðingu á þjónustu fyrstu dagana á nýju ári. 

Heimasíður fyrir nýju stofnanirnar eru í vinnslu. Á meðan verða heimasíður Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar aðgengilegar. Við bendum einnig á heimasíður Snæfellsjökulsþjóðgarðs og Vatnajökulsþjóðgarðs.

Verkefni Umhverfis- og orkustofnunar

Umhverfis- og orkustofnun tekur við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar. Stofnunin fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar. Þar á meðal eru verkefni í fjölbreyttum málaflokkum:

  • Efnamál
  • Eftirlit
  • Haf og vatn
  • Hringrásarhagkerfi
  • Loftgæði
  • Loftslags- og orkusjóður
  • Losunarheimildir
  • Orkuskipti
  • Orkunýtni

Verkefni Náttúruverndarstofnunar

Náttúruverndarstofnun tekur við verkefnum sem snúa að náttúruvernd hjá Umhverfisstofnun og starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. 

Þá sinnir stofnunin samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar og eftirliti á ofangreindum sviðum.