Stök frétt

Mynd frá vísindaleiðangri í Surstey sumarið 2024. / Ljósmyndari: IZARD Michel

Umhverfisstofnun og Eldheimar bjóða gestum og gangandi á opna kynningu um Surtsey. Viðburðurinn fer fram á milli kl. 14 og 15:30 föstudaginn 1. nóvember í Surtseyjarstofu í Eldheimum.

Dagskrá:

  • Kristín Jóhannsdóttir, safnstjóri Eldheima, opnar viðburðinn.
  • Inga Dóra Hrólfsdóttir, sviðstjóri á sviði náttúruverndar hjá Umhverfisstofnun, fjallar um hlutverk stofnunarinnar í Surtsey.
  • Einar Á. E. Sæmundsen,  þjóðgarðsvörður  á Þingvöllum,  fjallar um  vægi þess að svæðið sé á heimsminjaskrá UNESCO.
  • Vísindamennirnir Borgþór Magnússon, náttúru- og plöntuvistfræðingur, og Bjarni Diðrik Sigurðsson, líf- og vistkerfafræðingur, flytja erindi um rannsóknir í Surtsey. Báðir hafa þeir tekið þátt í rannsóknarstarfi í Surtsey um áratugaskeið.
  • Eftir að erindum líkur verður opnað fyrir spurningar og spjall.
  • Sýndar verða ljósmyndir sem teknar voru síðasta sumar í árlegum vísindaleiðangri í eyna. Einnig verður sýnd heimildarmynd sem var gerð af frönskum blaðamanni sem var með í för. 

Í boði verða léttar veitingar og tónlistaratriði.

Viðburðurinn er hluti af árlegri safnahelgi í Vestmannaeyjum sem fer fram að þessu sinni dagana 1. - 3.  nóvember 2024.