Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur borist umsókn frá Háskóla Íslands um leyfi til afmarkaðrar notkunar erfðabreyttra örvera í rannsóknarstofu að Klettagörðum 6, 104 Reykjavík.

Starfsemin sem hér um ræðir fellur undir lög nr. 18/1996 um erfðabreyttar lífverur og reglugerð nr. 275/2002 um afmarkaða notkun erfðabreyttra örvera. Umræddar örverur falla undir afmörkunarflokk 1 sem felur í sér minnstu mögulega áhættu fyrir fólk og umhverfi. Vinnueftirlitinu hefur verið tilkynnt um umsóknina. 

Umhverfisstofnun mun auglýsa ákvörðun sína um útgáfu leyfis síðar.