Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi vegna landeldis Kristínar Óskar Matthíasdóttur að Seftjörn, Vatnsfirði í Tálknafjarðarhreppi. Um er að ræða endurnýjun á starfsleyfi vegna bleikjueldis. Rekstraraðili hefur veri með heimilt eldi með allt að 200 tonnum, nýtt leyfi heimilar eldi með allt að 20 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma.

Að mati Umhverfisstofnunar eru helstu áhrif vegna eldisins losun næringarefna bæði á föstu formi og uppleystu í viðtakann. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í sjó með þeirri hreinsun sem rekstraraðili hyggst notast við. Hægt er að endurskoða fyrirkomulag fráveitu frá eldinu og gera auknar kröfur í hreinsun bendi mælingar til að hreinsun sé ábótavant samkvæmt mælingum. Þá er einnig hægt að endurskoða fyrirkomulag vöktunar út frá losun og áhrifum á vatnshlotið sem rekstraraðili losar í. 

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202204-021, athugasemdir verða birtar við útgáfu nema annars sé óskað. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 4. nóvember.

Tengd skjöl:
Umsókn um starfsleyfi
Tillaga að starfsleyfi
Mat á áhrifum á vatnshlot