Stök frétt

Umhverfisstofnun og Svanurinn bjóða starfsfólki byggingavöruverslana morgunhressingu og kynningu.

Fjallað verður um kröfur Svansins sem snúa að bygginga- og efnavörum. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig skuli markaðssetja vörur sem uppfylla þær kröfur.

Kynningin fer fram miðvikudaginn 16. október frá kl. 9 - 10 í húsakynnum Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24 - 5. hæð.

Skráning á kynninguna

Í kynningunni verður farið yfir:

  • Bygginga- og efnakröfur Svansins
  • Hvernig markaðssetja eigi samþykktar vörur
  • Grænþvott

Kynninguna flytja Guðrún Lilja Kristinsdóttir og Katla Þöll Þórleifsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis.

Svansvottunarferli bygginga tekur á þáttum eins og innivist, efnanotkun, hringrásarhagkerfinu og fleira og spilar þar val á byggingarvörum stóran þátt í vottunarferlinu.

Á síðustu árum hefur fjölda verkefna sem votta eftir viðmiðum nýbygginga eða endurbóta fjölgað svo um munar og hafa því miklar breytingar orðið á þegar kemur að umhverfismerktum vörum og öðrum vörum sem gjaldgengar eru í umhverfisvottaðar byggingar.

Viðburðurinn á Facebook