Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Samherja fiskeldi ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir landeldi á Reykjanesi.
Rekstraraðili sækir um heimild til að framleiða 40.000 tonn  af laxfiski á ári. 

Umhverfisstofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi.
Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfi og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verið auglýst í fjórar vikur. 

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.