Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Laxeyjar hf., Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum fyrir landeldi á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 13. maí til og með 11. júní 2024 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.


Tengd skjöl
Starfsleyfi Laxeyjar hf. Viðlagafjöru