Stök frétt

Umhverfisstofnun áformar að framlengja starfsleyfi Stolt Sea Farm hf. í Reykjanesbæ, sem gildir fyrir landeldi á senegalflúru og gullinrafa. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 6. júní 2025.

Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun ust@ust.is merkt UST202305-079. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 6. júní 2024.

Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem áformað er að framlengja.