Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Nordic Fish Leather ehf. vegna sútunarverksmiðju þeirra að Strandgötu 25, Tálknafirði. 

Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst frá 22. maí til kl. 12:00 þann 27. maí sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar.

Tengd skjöl:
Bráðabirgðaheimild
Starfsleyfi
Almenn starfsleyfisskilyrði