Stök frétt

Umhverfisstofnun boðar til opins kynningafundar um niðurstöður mengunarvarnaeftirlits og umhverfisvöktunar vegna starfsleyfis PCC BakkiSilicon. Fundurinn er árlegur og í samræmi við starfsleyfi PCC BakkiSilicon. 


Fundurinn fer fram fimmtudaginn 6. júní nk. kl. 16:30 í Golfskála GH við Katlavöll. 

Dagskrá fundarins:
    • Mengunarvarnaeftirlit Umhverfisstofnunar og niðurstöður eftirlits 2023 – Sigríður Magnúsdóttir, Umhverfisstofnun
    • Niðurstöður Umhverfisvöktunar – Eva Yngvadóttir, Efla
    • Andri Dan Traustason frá PCC flytur erindi
    • Marella Steinsdóttir frá PCC flytur erindi
     • Umræður
Fundarstjóri: Sigríður Kristinsdóttir, Umhverfisstofnun

Skýrslu Umhverfisvöktunar má nálgast hér

Allar ábendingar varðandi þær upplýsingar sem íbúar og aðrir hafa áhuga á að heyra um varðandi eftirlit Umhverfisstofnunar og starfsemi PCC eru velkomnar. Ábendingum má koma á framfæri á ust@ust.is og á kynningafundinum.