Stök frétt

Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja lokun hellis sem fannst í Mývatnssveit fyrir rúmu ári. Hellirinn verður lokaður í sex mánuði til viðbótar eða til 19. október 2024 og tekur framlengingin gildi 19. apríl nk. Lokunin er samkvæmt 25. gr. a laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.
Þörf er á lengri tíma til að vinna að og leita varanlegra lausna sem snúa að verndun hellisins og telur Umhverfisstofnun því nauðsynlegt að hellirinn verði áfram lokaður. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur nú staðfest ákvörðun stofnunarinnar.
Samráð var haft við hagsmunaaðila þegar ljóst var að þörf væri á framlengingu lokunarinnar. 
Umhverfisstofnun mun, á meðan lokunin er í gildi, hefja vinnu við friðlýsingu hellisins til að tryggja verndun útfellinga í hellinum til frambúðar.


Einstakar jarðminjar

Jarðhitaútfellingar sem fundust í hellinum eru einsdæmi á Íslandi. Við greiningu kom í ljós að um er að ræða útfellingar kalsíumkarbónats (CaCO3) sem telst afar sjaldgæft í hraunhellum á heimsvísu. Það sem gerir þennan helli sérlega sérstakan er að útfellingarnar hafa þarna fallið úr jarðhita, en á heimsvísu myndast sambærilegar útfellingar í grunnvatni sem drýpur úr lofti.
Útfellingarnar dreifast um allan hellinn og hafa þar vaxið helst á gólfi og veggjum hans. Hellirinn er í hrauni sem talið er vera um 8000 ára gamalt og var hann einangraður frá yfirborði jarðar í árþúsundir. Viðvarandi jarðhiti í hellinum skapaði heitar og rakar aðstæður sem útfellingarnar mynduðust í.
Útfellingarnarnar eru því jarðmyndanir sem teljast hafa mjög hátt verndargildi sökum sérstöðu og fágætis og markmiðið með lokuninni er því að tryggja að jarðmyndanirnar í hellinum verði ekki fyrir óafturkræfu raski.

Öll umferð óheimil

Meðan á lokuninni stendur getur Umhverfisstofnun veitt leyfi fyrir ferðum sem tengjast frekari könnun hans og rannsóknum á honum, en öll önnur umferð verður óheimil. Þá er stofnuninni heimilt að opna svæðið fyrr ef stofnunin metur sem svo að það sé fýsilegt og að ekki verði lengur talin hætta á skemmdum.

Tengt efni: