Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður eftirlits Umhverfisstofnunar og umhverfisvöktunar hjá PCC á Bakka. Fundurinn verður haldinn í sal Framsýnar að Garðarsbraut 26, Húsavík, fimmtudaginn 6. september næstkomandi kl. 17:00.
Dagskrá:
Guðbjörg Stella Árnadóttir frá Umhverfisstofnun kynnir eftirlit Umhverfisstofnunar.
Einar Halldórsson frá Umhverfisstofnun kynnir niðurstöður úr eftirliti með PCC á Bakka.
Elma Sif Einarsdóttir frá PCC kynnir niðurstöður umhverfisvöktunar.
Erlingur E. Jónasson frá PCC á Bakka flytur erindi.
Umræður verða að loknum framsöguerindum. Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar og nærsveitamenn hvattir til að mæta.