Stök frétt

Fyrir 6

Hráefni
1,2 kg snyrtur hreindýravöðvi í 100 g sneiðum
salt og pipar

Ferskjusósa
1/2 l villibráðarsoð (úr fugla- eða hreindýrabeinum)
50 g sólberjasulta
1 dl púrtvín
2 stk ferskjur, nýjar, skonar í báta
50 g kalt smjör
1 stk súputeningur (Maggi) eða kjötkraftur
sósujafnari
salt og pipar

Meðlætið
600 g kartöflur
1 búnt timian, ferskt
4 stk gulrætur
150 g sykurbaunir
1 dl rjómi

Leiðbeiningar:
Skerið kjötið í 100 g sneiðar og steikið í smjöri á pönnu. Takið af og haldið heitu í ofni meðan sósan er löguð. Berið fram með ferskjusósu, rjómasoðnum kartöflum, soðnum gulrótarstrimlum og sykurbaunum.

Ferskjusósa
Setjið vínið á pönnuna ásamt soðinu og leysið upp steikarskófina. Bætið sólberjasultunni og maukuðum ferskjunum saman við og sjóðið varlega. Þykkið smávegis með sósujafnara og klípið kalt smjörið í rétt áður en sósan er borin fram. Sósan má ekki sjóða eftir að smjörið er komið í. Bragðbætið með salti og pipar.

Meðlætið
Skerið gulræturnar í strimla og sjóðið ásamt sykurbaununum í léttsöltu vatni í 4 - 5 mínútur. Afhýðið litlar soðnar kartöflur og sjóðið í rjóma og fersku timian á pönnu þar til rjóminn þykknar.