Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Lagaramminn

Rammatilskipun Evrópusambandsins um verndun vatns (Directive 2000/60/EC) var samþykkt árið 2000.

Á Íslandi gengur innleiðing vatnatilskipunar undir heitinu „Stjórn vatnamála“. Umhverfis- og orkustofnun hefur umsjón með innleiðingu laga nr. 36/2011 um stjórn vatnamála sem voru samþykkt á Íslandi árið 2011. Meginmarkmið laganna er að stuðla að verndum vatns og vistkerfa þess og þannig hafa bein áhrif á að minnka álag á vatn. Lögin ná yfir grunnvatn og allt yfirborðsvatn (þ.e. straumvötn, stöðuvötn, lón, árósavatn og strandsjó).

Helstu reglugerðir

Lög um stjórn vatnamála mynda ramma fyrir margar reglugerðir á sviði umhverfismála. Þær helstu eru:

  • Reglugerð um neysluvatn 536/2001
  • Reglugerð um varnir gegn mengun vatns 796/1999
  • Reglugerð um varnir gegn mengun grunnvatns 797/1999
  • Reglugerð um fráveitur og skólp 798/1999
  • Reglugerð um meðhöndlun seyru 799/1999
  • Reglugerð um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit 550/2018
  • Reglugerð um varnir gegn mengun vatns af völdum köfnunarefnissambanda frá landbúnaði og öðrum atvinnurekstri 804/1999

Að auki tengjast tilskipanir ESB um flóð og haf lögum um stjórn vatnamála.

Samvinnuverkefni

Með heildstæðri stjórn vatnamála er gert ráð fyrir að allir sem nota vatn eða valda álagi á vatn starfi saman og taki þátt í verkefninu, þvert á sveitarfélagsmörk. Stjórn vatnamála er þannig samvinnuverkefni stjórnvalda, stofnana, ráðgjafa, sveitarfélaga, heilbrigðisnefnda og náttúruverndar- eða umhverfisnefnda sveitarfélaga, hagsmunaaðila og almennings sem meðal annars vinna saman í vatnasvæðisnefnd á hverju vatnasvæði.

Einnig vinna sérfræðingar samstarfsstofnana á sviði ferskvatns og sjávar sérhæfð verkefni fyrir Umhverfis- og orkustofnun.

Markmið

Markmið stjórnar vatnamála er að:

  • Vernda vatn og vistkerfi þess, hindra frekari rýrnun vatnsgæða og bæta ástand vatnavistkerfa til þess að vatn hljóti heildstæðrar verndar.
  • Jafnframt að stuðla að sjálfbærri nýtingu vatns og langtímavernd vatnaauðlindarinnar

Til að ná fram markmiðum skal vinna vatnaáætlun, aðgerðaráætlun og vöktunaráætlun.

Samkvæmt lögunum skal:

allt yfirborðsvatn vera í mjög góðu eða góðu vistfræðilegu og góðu efnafræðilegu ástandi og allt grunnvatn skal hafa góða magnstöðu og gott efnafræðilegt ástand, þó með þeim fyrirvara að aðgerðir til þess rýri ekki hag íbúa og kostnaður sé ekki úr hófi fram (sjá 16. og 18. gr. laga um stjórn vatnamála).

Innleiðingartímabil

Innleiðingartímabil stjórnar vatnamála hófst árið 2011 en hlé var gert á vinnunni frá árinu 2013-2017. Meðal verkefna er að:

  • Skilgreina vatnshlot og gerðir vatns
  • Safna tiltækum gögnum um vatn
  • Kortleggja svæði sem eru vernduð vegna sérstöðu vatns
  • Greina álag
  • Leggja mat á álag á vatn og áhrif þess
  • Kortleggja ástand vatns og gæðaflokka vistfræðilegt ástand þess
  • Setja fram umhverfismarkmið um að bæta eða viðhalda ástandi vatns
  • Leggja fram aðgerðaráætlun svo að markmiðin náist
  • Áætlun um heilsteypta vöktun vatns hér á landi
  • Gefa út vatnaáætlun fyrir Ísland