Stök frétt

Mynd: Krystian Tambur - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi Icelandic Land Farmed Salmon ehf., Friðarhöfn í Vestmannaeyjum vegna landeldis á laxfiskum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 31. mars til og með 30. apríl 2023 þar sem hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar. Engin athugasemd barst vegna tillögunnar.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Ákvörðun um útgáfu starfsleyfis ILFS ehf. Friðarhöfn
Starfsleyfi Icelandic Land Farmed Salmon ehf. Friðarhöfn