Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Íslenska Gámafélagið ehf. til móttöku og meðhöndlun á allt að 500 tonnum af spilliefnum í Gufunesi. Íslenska Gámafélagið ehf. var með eldra starfsleyfi fyrir sömu starfsemi. Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á vefsíðu Umhverfisstofnunar á tímabilinu 4. apríl 2019 til og með 3. maí 2019 og gefst á þeim tíma tækifæri til að koma með athugasemdir áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.

Í samskiptum við rekstraraðila hefur komið fram að fyrirtækið hyggist flytja starfsemina upp á Kistumela á Kjalarnesi innan fárra ára en gildistími auglýstrar tillögu er út árið 2030 sem er í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. rg. nr. 550/2018.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 3. maí 2019.

Tengd skjöl:
Tillaga að starfsleyfi
Starfsleyfisumsókn
Áhættugreining fyrir spilliefnamóttöku