Stök frétt

Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir Reykjadal í Ölfusi dag hvern. Vegna veðrabreytinga, hlýinda og vætu í göngustíg er álag á stíginn og umhverfi hans gríðarlegt. Umrætt svæði er nr. 752 á náttúruminjaskrá. Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að loka svæðinu vegna aurbleytu uns bót verður á. Lokunin tekur gildi klukkan 10 laugardaginn, 31. mars og er gerð til að vernda gróður og landslag umhverfis göngustíginn.

Stefnt er að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða fyrr ef ástand breytist.

Lokunin er samkvæmt 25 gr. a. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.