Stök frétt

Mikill fjöldi ferðamanna hefur heimsótt Fjaðrárgljúfur að austan í hlýindum og mikilli vætutíð síðustu daga. Þetta hefur gert það að verkum að álag á göngustíg og umhverfi hans er gríðarlegt. Umrætt svæði er nr. 703 á náttúruminjaskrá. Umhverfisstofnun hefur gripið til þess ráðs að loka svæðinu vegna aurbleytu þar til gerðar hafa verið úrbætur. Lokunin er gerð bæði af öryggisástæðum og til að vernda gróður í umhverfi göngustígsins.

Stefnt er að því að endurskoða lokunina eigi síðar en innan tveggja vikna eða ef ástand breytist. Lokunin er samkvæmt 25 gr. laga um náttúruvernd.