Stök frétt

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir 2018 að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1450 dýr á árinu, 1061 kú og 389 tarfa. Um er að ræða fjölgun um 135 dýr frá hreindýrakvóta fyrra árs.

Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingablaðinu.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Jafnframt er ráðuneytið með í skoðun hugsanleg áhrif kúaveiða á kálfa og álag og áhrif þeirra sem mögulega getur haft áhrif að ákvarðanatöku um veiðitíma til framtíðar. 

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimildanna. Sjá nánar hér.

(Myndin er tekin af tarfi á Austurlandi. Heimild: hreindyr.com - ljósmyndari: Skarphéðinn G. Þórisson)