Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir Stofnfisk hf. til reksturs fiskeldisstöðvar að Kalmanstjörn, Reykjanesbæ. Leyfið heimilar eldi á allt að 200 tonnum af laxi á landi.

Sérstakt samráð var haft við Heilbrigðisnefnd Suðurnesja við gerð tillögunnar og var tillagan svo auglýst í átta vikur á tímabilinu 6. febrúar til 3. apríl 2017. Auk umsagnar Heilbrigðisnefndar Suðurnesja bárust athugasemdir frá Óttari Yngvasyni. Upplýsingar um meðferð athugasemda er að finna í greinargerð sem fylgir fréttinni.

Nýja starfsleyfið tók gildi 26. apríl sl. og gildir það til 26. apríl 2021.

Meðfylgjandi gögn: 
Starfsleyfi
Greinargerð með starfsleyfi

Starfsleyfistillagan auglýst