Stök frétt

17. ársfundur Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga var haldinn þann 6. nóvember síðastliðinn. Þema fundarins að þessu sinni var Hlutverk náttúruverndarnefnda. Sveitarfélagið Rangarþing eystra var gestgjafi að þessu sinni og var fundurinn haldinn í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli. Að fundi loknum var farið í afar skemmtilega skoðunarferð um nágrennið og var leiðsögumaður Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri. 

Í lögum um náttúruvernd nr. 44/1999 er kveðið á um hlutverk náttúruverndarnefnda og í 11. gr. laganna segir að Umhverfisstofnun og fulltrúar náttúruverndarnefnda skuli halda a.m.k. einn sameiginlegan fund á ári. Náttúruverndarnefndir eiga einnig að veita Umhverfisstofnum yfirlit yfir störf sín með skýrslu í lok hvers árs. 

Náttúruverndarnefndir gegna mikilvægu hlutverki og skulu vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um náttúruverndarmál og jafnframt stuðla að náttúruvernd á sínu svæði, m.a. með fræðstlu og umfjöllun um framkvæmdir og starfsemi sem er líkleg til þess að hafa áhrif á náttúruna.