Stök frétt

Umhverfisstofnun vill árétta að samkvæmt lögum er óheimilt frá 15. mars til 15. ágúst að koma nær arnarhreiðrum en 500 metrum nema brýna nauðsyn beri til, svo sem vegna lögmætra nytja sem ekki er hægt að stunda á öðrum árstíma, enda sýni menn ítrustu varfærni og forðist að trufla fuglana. Þessi takmörkun á umferð gildir bæði þar sem ernir eru að búa sig undir varp og við þau hreiður sem orpið hefur verið í og eru með eggjum eða ungum.

Bannið er fortakslaust, nema um sé að ræða það sem kalla má hefðbundnar nytjar sem ekki er hægt að stunda á öðrum árstíma. Þessi undantekning getur átt við um hefðbundinn landbúnað og nytjar svo sem dún- og eggjatöku en hún á ekki við um siglingar með ferðamenn eða aðra ferðaþjónustu. Umhverfisstofnun getur þó veitt undanþágu frá banninu sé sótt um hana fyrirfram. Frá 2005 hefur Umhverfisstofnun samþykkt þrisvar sinnum að siglt sé með ferðamenn að arnarhreiðrum og jafnoft hafnað beiðni þess efnis. Á sama tímabili hefur hins vegar stofnunin veitt 67 undanþágur til myndatöku við arnarhreiður og hafnað sex beiðnum um það sama. Hefur beiðnum um undanþágu til myndatöku við arnarhreiður fjölgað verulega á síðustu árum.

Örninn er alfriðaður á Íslandi og getur verið viðkvæmur fyrir truflun á varptíma. Hætta er á að varp misfarist verði fuglinn endurtekið fyrir slíku áreiti. Berist Umhverfisstofnun upplýsingar þess efnis að brotið hafi verið gegn umræddu ákvæði í lögum má búast við að málinu verði vísað til lögreglu. Brot gegn lögum 64/1994 um vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.