Stök frétt

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið vill koma þeirri ábendingu á framfæri við seljendur og kaupendur leiktækja að rólur og önnur leiktæki sem seld eru til notkunar á fjöleignarhúsalóðum, við sumarhúsbyggð, á tjaldsvæðum og samkomustöðum þurfa að uppfylla ákvæði reglugerðar um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. 

Í umræddri reglugerð er kveðið á um öryggisreglur sem stuðla að öryggi barna með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt. 

Þetta felur m.a. í sér að rólur mega ekki vera útbúnar með þeim hætti að kaðlar séu festir við sæti þeirra án einhvers konar varnar sem kemur í veg fyrir að lykkja geti myndast á köðlunum.

Víða má kaupa leiktæki sem ætluð eru til einkanota, s.s. í leikfangaverslunum, stórmörkuðum og byggingarvöruverslunum sem uppfylla ekki þessar kröfur, en nánari upplýsingar um þau má finna á vefsíðu Neytendastofu. Kemur þar m.a. fram að þar sem kaðlar, háir kastalar og rennibrautir eru annars vegar sé nauðsynlegt að vara við kyrkingar- og fallhættu. Þetta á við um öll leiktæki. 

Ráðuneytið vill benda á að í þeim tilfellum þar sem keyptar eru rólur sem ekki uppfylla kröfur ofangreindrar reglugerðar og þær notaðar á einkalóðum, megi í mörgum tilfellum auka öryggi þeirra með viðbótarbúnaði, einföldum plasthólkum, sem koma í veg fyrir að lykkja geti myndast á köðlunum. 

Hefur ráðuneytið beint því til Umhverfisstofnunar að árétta við seljendur leiktækja að uppfylli þau ekki ákvæði reglugerðarinnar megi ekki selja þau til notkunar á öðrum svæðum en afgirtum einkalóðum sem börn eiga ekki greiðan aðgang að.