Stök frétt

Skilafrestur veiðiskýrslna er í dag 1.apríl. Ef skilað er eftir 1. apríl hækkar gjald fyrir veiðikortið úr 3.620 kr. í 5.120 kr. 

Öllum veiðikorthöfum er skylt að skila inn veiðiskýrslu undangengins veiðiárs, hvort sem viðkomandi veiddi eitthvað eða ekki. Eins þarf veiðikorthafi að skila inn skýrslu hvort sem hann hyggst endurnýja veiðikort eða ekki.

Til að skerpa á skilaskyldunni hækkar veiðikortagjaldið hjá þeim sem skila inn veiðiskýrslu sinni eftir 1. apríl úr 3.620 kr. í 5.120kr. með sendingarkostnaði sem er 120 kr.