Sendir hafa verið út greiðsluseðlar vegna lokagreiðslu hreindýraveiðileyfa. Einnig ætti krafan að birtast í heimabanka viðkomandi.
ATH! Síðasti mögulegi greiðsludagur er 2. júlí.
Veiðimenn sem greiða ekki á tilskildum tíma afsala sér úthlutuðu leyfi.
Ef þú hefur ekki fengið greiðsluseðilinn eða ert búinn að glata honum geturðu millifært viðkomandi upphæð eftir reikningsupplýsingum.
Reikningsnúmer: 305-13-300515
Kennitala móttakanda: 701002-2880
Skýring greiðslu: Kennitala leyfishafa
Upphæð lokagreiðslu er sem hér segir:
Vinsamlegast láttu vita sem fyrst ef þú ert hættur við að taka leyfið.
Áður en veiðimaður fer til hreindýraveiða skal hann hafa staðist verklegt skotpróf á síðustu tólf mánuðum. Veiðimaður þarf að skila inn staðfestingu á að hann hafi lokið verklegu skotprófi fyrir 1. júlí ár hvert.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 591-2000.