Stök frétt

Umhverfisráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun. Heimilt verður að veiða allt að 1009 dýr á árinu sem er fjölgun um átta dýr frá fyrra ári.

Heimildirnar skiptast þannig að leyft verður að veiða 588 kýr alls og 421 tarfa. Veiðin skiptist milli níu veiðisvæða og eru mörk þeirra og fjöldi dýra á hverju svæði tilgreind nánar í auglýsingu sem birtist í Lögbirtingarblaðinu á næstunni.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Veiðitíminn er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí og lengt veiðitíma kúa til og með 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

Gjaldskrá hefur ekki verið gefin út en opnað verður fyrir umsóknir þegar hún liggur fyrir.