Stök frétt

Landvarðarnámskeið 2012

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður á vormánuðum 2012. Jón Björnsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun sem hefur umsjón með Hornstrandafriðlandinu sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þættir námskeiðum. Námskeiðið spannar rúmlega 100 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 16. febrúar og lýkur 11. mars. Nemendur sem lokið hafa landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu.

Markmið námskeiðsins er að tryggja framboð af hæfum landvörðum til starfa á friðlýstum svæðum. Kennt er samkvæmt námskrá Umhverfisstofnunar og reglugerðar um landverði, nr. 061/1990. 

Lágmarksaldur þátttakenda er 20 ára á árinu. Lágmarksfjöldi þátttakenda til að námskeið verði haldið er 15 og hámarksfjöldi 30.   

Kennsla, stundaskrá

Námskeiðið verður kennt milli  kl. 17:00 til 22:00, alls 7 kvöld og þrjár helgar milli klukkan 09:00 og 19:00 (sjá stundaskrá að neðan). Fjögurra daga vettvangs- og verkefnaferð verður í Skaftafell í Öræfum. Námskeiðið verður boðið sem staðarnám og fjarnám. Fjarnemar hafa skyldumætingu í Skaftafellsferðina og lokahelgina.  

Staðsetning námskeiðs

Námskeiðið verður haldið á 5. hæð í húsnæði Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, Reykjavík. Allir fyrirlestrar verða teknir upp þar og settir á netið í lok hvers dags. Nemendum af öllu landinu gefst kostur á að taka þátt.

Námskeiðsgjöld

Námskeiðsgjöld eru 120.000 kr og standa undir öllum kostnaði við námskeiðið. Innifalið í námskeiðsgjaldi eru kennsla, kennslugögn og vettvangsferðir. Einnig fæðis- og gistikostnaður verkefnaferðar í Skaftafell. Boðið er uppá kaffi og te á námskeiðsstað.  Nemendur eru hvattir til þess að hafa með sér nesti kvöld og helgar á Suðurlandsbraut, en einnig er þar hægt að kaupa ávexti, skyr og annað smávægilegt. Námskeiðið er styrkhæft hjá mörgum starfsmenntunarsjóði.

Leiðbeinendur, val og reynsla

Leiðbeinendur eru reynslumiklir starfsmenn, landverðir og starfsmenn annarra stofnanna. Lögð er áhersla á leiðbeinendur með víðtæka reynslu og þekkingu á starfssemi verndarsvæða og störfum landvarða, eða sambærilegt. Margir þeirra hafa kennt árum saman á landvarðarnámskeiðum.

Lögð er rík áhersla á að nemendur fái góða þjónustu og kennslu. Jafnframt að námið sé  nytsamt og gagnist nemendum þó þeir starfi ekki við landvörslu. Leiðbeinendur eru meðvitaðir um þennan þátt og undirbúa kennslu sína með hag nemenda að leiðarljósi.

Mat á frammistöðu nemenda

Nemendur taka þátt í öllum hópverkefnum sem lögð verða fyrir. Fjarnemar leysa sérverkefni í þeim námskeiðum sem lenda utan staðarlota. Einnig skulu nemendur leysa önnur verkefni sem kennarar leggja fyrir. Heimavinna er í formi lesturs á ítarefni sem lagt verður fyrir, einstaklingsverkefnum o.fl. Mat verður lagt á frammistöðu nemenda á námskeiðinu og þeir sem ekki standast matið geta ekki útskrifast. 

Nánari upplýsingar um námskeiðið og skráning

Fullt er á námskeiðið í ár. Nánari upplýsingar um námskeiðið gefur Jón Björnsson í síma 591 2000.

Dagskrá

Stundaskrá

Dags:

Efni og helstu aðferðir:

Lengd.

Tími.

16. feb

Kynning á námskeiði

1 klst.

17-18

16. feb

Helstu störf landvarða. Saga landvörslu.

4 klst.

18-22

17. feb

Náttúruvernd, saga, hugmyndafræði.

5 klst.

17-22

18. feb

Náttúrutúlkun

3 klst

9-12

18. feb

Menningarminjar. Gildi og  verndun. 

6 klst.

12-19

19. feb

Vistfræði, Náttúrufræði. Grunnþættir, hugtök, gildi og verndun.

3 klst.

13-12

19. feb

Stjórnsýsla umhverfismála. Fyrirlestrar og umræður.

6 klst

13-19

23. feb

Mannleg samskipti, almennt um samskipti, sjálfsmynd, hindranir, framkoma, ímynd og fleira. Að taka á erfiðum málum.

5 klst.

17-22

24 feb

Upphaf og gildi þjóðgarða.

2 klst.

17-19

24. feb

Þróun ferðaþjónustu Ferðamennska, ástæða heimsókna á svæði, sýn gesta, þolmörk og viðhorf. Mismunandi hópar og þarfir gesta.  hvernig koma landverðir að ferðaþjónustu á sínum svæðum –

3 klst.

19-22

29. feb

Náttúrutúlkun

4 klst

17-21

1. mars

Farið í Skaftafell

4 klst.

17-21

2. mars

Náttúrutúlkun undirbúningur fyrir verklegar æfingar

10 klst.

3. mars

Náttúrutúlkun, verklegar æfingar

10 klst.

4. mars

Náttúrutúlkun, aðrir miðlar, s.s. náttúru- og göngustígar, gestastofur o.fl.

4 klst

4. mars

Náttúrutúlkun í Skaftafelli, heimferð

6 klst.

9 mars

Starfsumhverfi landvarða, mismunur milli starfssvæða, umhverfismerki og vistvæn innkaup, umhverfisstefna, upplýsingamiðstöðvar og kynning á landvarðarfélaginu.

Störf sjálfboðaliða

5 klst.

17-22

10. mars

Öryggisfræðsla, fyrirlestrar og vettvangsferðir

10 klst.

9-19

11. mars

Verndaráætlun, stefnumörkun. Hvað er og fyrir hverja? Hagsmunaaðilar. Samráð. Stjórntæki.

10 klst.

9-19

11.mars

Lok námskeiðs

2 klst.

18-20

Skyldumæting í Skaftafell og lokahelgina

Stundaskráin er með fyrirvara um breytingar.  Ef breytingar verða á dagskrá, liggja þær fyrir eigi síðar en 25. janúar.