Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu á breyttu og endurskoðuðu starfsleyfi fyrir Ís 47 ehf. í Önundarfirði fyrir eldi á laxfiskum í sjókvíum. Tillaga að starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 19. desember 2024 til og með 27. janúar 2025 og hægt var að senda inn athugasemdir vegna hennar á sama tímabili. Aftast í starfsleyfinu fylgir greinargerð þar sem farið er yfir málsmeðferðina og tekin afstaða til niðurstöðu umhverfismats, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum en í greinargerð er fjallað um þær. Athugasemdirnar má einnig nálgast í hlekk hér fyrir neðan.

Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl