Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur.

Stök frétt

Umhverfis- og orkustofnun áformar að framlengja starfsleyfi Lækjarbotnableikju í Rangárþingi ytra sem gildir fyrir allt að 20 tonna landeldi. Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstraraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlenging á starfsleyfi er heimil til eins árs eða til 15. janúar 2026. 

Athugasemdir við áform um framlengingu leyfisins skulu vera skriflegar og sendar Umhverfis- og orkustofnun á netfangið uos@uos.is merkt UST202412-052. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 13. janúar 2025.

Skoða starfsleyfi Lækjarbotnableikju sem áformað er að framlengja