Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf., Örfirisey, 101 Reykjavík. Rekstraraðila er heimilt að geyma allt að 72.000 m3 af olíu og bensíni í stöðinni á hverjum tíma og þar af olíu í stærsta geymi allt að 9.100 m3 og allt að 9.100 m3 af bensíni, auk móttöku og hreinsunar á allt að 9.000 m3 af úrgangsolíu. 


Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á á tímabilinu 27. september 2024 til og með 28. október 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.
Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl
Starfsleyfi Olíudreifingar ehf., Örfirisey