Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um útgáfu starfsleyfis fyrir fiskimjölsverksmiðju Ísfélags hf. um borð í Sólberg ÓF-1. Rekstraraðili hefur heimild til að framleiða úr allt að 48 tonnum af hráefni á sólarhring.

Tillaga að nýju starfsleyfi var auglýst á tímabilinu 14. október til og með 11. nóvember 2024 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar. Engar athugasemdir bárust vegna tillögunnar á auglýsingatíma.

Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starfsleyfinu, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar stofnunarinnar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustu hætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðanefnd umhverfis- og auðlindamála.


Tengd skjöl
Starfsleyfi Ísfélag hf., Sólberg ÓF-1.