Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Thor landeldis ehf. um nýtt starfsleyfi fyrir landeldi í Ölfusi.

Rekstraraðili sækir um heimild til að framleiða 20.000 tonn  af laxfiski á ári.  

Umhverfisstofnun hefur farið yfir umsóknina og metið hana fullnægjandi. Á næstunni verður unnin tillaga að starfsleyfi og í framhaldinu er gert ráð fyrir að hún verið auglýst í fjórar vikur. 

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugsemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.