Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur.

Stök frétt

23. mars.2022 | 13:38

Umsókn um breytingu á starfsleyfi - Arnarlax ehf. Arnarfirði

Mynd tekin af vef Arnarlax ehf.
Umhverfisstofnun hefur móttekið umsókn Arnarlax ehf. vegna breytingar á starfsleyfi þess í Arnarfirði. Á næstunni verður unnin tillaga að breytingu á starfsleyfinu og í framhaldinu er gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í fjórar vikur.

Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.