Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun um veitingu bráðabirgðaheimildar fyrir Skotveiðifélag Reykjavíkur/Skotreyn vegna rekstrar skotvallar á Álfsnesi í Reykjavík, skv. 7. gr. a. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Heimildin gildir þar 5. janúar 2025, eða þar til nýtt leyfi hefur verið gefið út.

Áform um veitingu bráðabirgðaheimildarinnar voru auglýst frá 26. ágúst til 30. ágúst sl. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatímanum.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar.

Fylgiskjöl: