Stök frétt

Búið er að senda út greiðsluseðla vegna staðfsestingargjalds til þeirra sem fengu úthlutað hreindýraveiðileyfi. Seðlarnir ættu að berast á næstu dögum eða eru þegar komnir. Einnig birtist krafan frá Umhverfisstofnun í heimabönkum viðkomandi - hægt er að greiða seðilinn eða greiða kröfuna beint í heimabanka. Gætið þess ef þið setjið greiðsluna í framvirkar greiðslur sem eiga að greiðast ákveðinn dag að innistæða þarf að vera fyrir hendi á þessum ákveðna degi, annars greiðist ekki krafan. Eindagi er 31. mars.

Ef greiðsla hefur ekki borist fyrir 1. apríl þá missa menn af leyfinu. Það að greiðsla berist fyrir tilskilinn tíma er á ábyrgð hvers og eins veiðimanns.