Stök frétt

Hver Íslendingur henti 667 kílóum árið 2021 / Mynd: Anton Brink

Umhverfisstofnun og auglýsingastofan TVIST hafa hlotið tilnefningu til auglýsingaverðlaunanna Lúðursins. Tilnefningin er í flokki PR – almannatengsla fyrir íslenska úrgangsfjallið. 

Íslenska úrgangsfjallið var sett upp á viðburði til þess að vekja athygli á verkefninu Allan hringinn

Ísland er í sjöunda sæti yfir þær þjóðir innan Evrópu sem henda mestu magni af heimilisúrgangi á hverju ári eða að meðaltali um 667 kg á hvern Íslending. Að því tilefni var íslenska úrgangsfjallið reist, táknræn 667 kg ruslahrúga inni í Góða hirðinum. Markmiðið með úrgangsfjallinu var að sýna hve mikilvægt það er að draga úr óþarfa neyslu, endurnýta meira og urða minna.

Allan hringinn er samstarfsverkefni á vegum stofnana, sveitarfélaga,  rekstraraðila í úrgangsþjónustu og hagsmunasamtaka í atvinnulífinu. Markmiðið með Allan hringinn er að kynna breytingar í úrgangsmálum árið 2023 í kjölfar gildistöku nýrra laga og hvetja landsmenn alla til að taka þátt í að mynda hringrásarhagkerfi á Íslandi af fullum krafti. 

Nánar um Allan hringinn og úrgangsmál

Skoða allar tilnefningar til Lúðursins

Um úrgangsfjallið á heimasíðu TVIST

Hópurinn sem stendur að baki verkefninu Allan hringinn, fulltrúar frá Umhverfisstofnun, Úrvinnslusjóði, Endurvinnslunni, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, SORPU, Terra umhverfisþjónustu, Íslenska gámafélaginu, Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Mynd: Anton Brink.