Stök frétt

Mynd: Amber Kipp - Unsplash
Umhverfisstofnun hefur fallist á að framlengja gildistíma starfsleyfis Stjörnugríss hf. Melum, Hvalfjarðarsveit vegna reksturs svínabús. 

Samkvæmt. 4. mgr. 6. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir má útgefandi starfsleyfis framlengja gildistíma starfsleyfis meðan nýtt starfsleyfi er í vinnslu, að hámarki til eins árs, hafi fullnægjandi umsókn borist útgefanda. Áform um framlengingu voru auglýst á heimasíðu Umhverfisstofnunar 4. ágúst sl.  til og með 11. ágúst.

Framlenging á starfsleyfi Stjörnugríss hf. er hér með veitt og mun gilda þar til nýtt starfsleyfi er gefið út eða í síðasta lagi til 29. júní 2024.
Ákvörðun Umhverfisstofnunar um framlengingu starfsleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu hennar.

Tengd skjöl:
Ákvörðun um framlengingu starfsleyfis