Veiðifrétt

09.07.2021 11:35

15. júlí 2021

Veiðar á törfum byrja 15. júlí eins og undanfarin ár. Það verður fjör eftir miðnætti nú þann 14. Margir búnir að skrá sig til veiða, sumir ætla að vera tilbúnir kl. 24.00. Alli í Klausturseli með einn mann á sv. 2, Tóti Borgars með tvo á svæði 3, fellt í Skúmhattardal í Loðmundarfirði. Ívar Karl með einn á sv. 3, fellt í Loðmundarfirði, Björn Ingvarss. með tvo á sv. 3, einn feldur hjá Klúku á Eyjum, Jakob Karls með einn á sv. 4, fellt vestast á Gagnheiði, Maggi Karls með einn á sv. 6, fellt á Hallsteinsdalsvarpi Skriðdal, Guðmundur á Þvottá með einn á sv. 7, fellt undir Búlandstindi, Helgi Jenss. með einn á sv. 7, Jón Magnús með einn á sv. 7, fellt undir Búlandstindi, Eiður Gísli með einn á sv. 7. veiðimaður hans felldi strax eftir miðnætti utan við Búlandsdal þannig að fyrsti tarfurinn er fallinn, hann bætir öðrum veiðimanni við, felldi líka á svipuðum slóðum. Siggi á Borg með einn mann á sv. 9, fellt fyrir neðan Flatey.
Til baka