Fundargerð
Umhverfisstofnun, Reykhólahreppur, framfarafélag Flateyjar og ábúendur vinna nú að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir friðlandið Flatey.
Flatey á Breiðafirði var fyrst friðlýst sem friðland árið 1975. Friðlýsingin var endurskoðuð og friðlandið stækkað með auglýsingu nr. 955/2021. Friðlandið er nú 1,62 km2. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda. Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi og er vel þekkt á meðal vísindamanna og fuglaáhugafólks. Markmið með friðlýsingunni er einnig að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins, með áherslu á búsvæði og afkomu varpfugla og að tryggja fræðslu um fuglalífið í eynni og nágrenni.
Líffræðileg fjölbreytni svæðisins er mikil og er þar fjölskrúðugt fuglalíf sem byggist m.a. á fjölbreyttu fæðuframboði, miklum fjörum og takmörkuðu aðgengi rándýra að svæðinu. Í friðlandinu verpa fuglategundir sem eru sjaldgæfar á landsvísu, á válista og ábyrgðartegundir Íslendinga, s.s. þórshani, kría og lundi. Auk þess er þar mikið æðarvarp. Búsvæði og lífríki í fjörum og í sjó er afar fjölbreytt og mikilvægt fæðusvæði margra fuglategunda. Náttúrufegurð svæðisins er einnig mikil. Gróðurfar einkennist af túnum, grasmóum, gulstararmýrum og sjóflæðagróðri. Þar finnst marhálmur sem er sjaldgæfur á landsvísu.
Hér fyrir neðan verða sett inn skjöl sem tengjast vinnu við áætlunina s.s. verk- og tímaáætlun, samráðsáætlun og fundargerðir. Lögð er áhersla á opið og gagnsætt ferli og eru einstaklingar hvattir til að kynna sér verkefnið og senda inn athugasemdir og ábendingar.
Frekari upplýsingar veita Ingibjörg Marta Bjarnadóttir (ingibjorgb@umhverfisstofnun.is) og Edda Kristín Eiríksdóttir (eddak@umhverfisstofnun.is) eða í síma 591-2000.
Fundargerðir samstarfshóps:
Áætluninni hefur verið vísað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til staðfestingar.
Frekari upplýsingar um áætlunina og kynningarferlið eru að finna hér.
Opinn kynningarfundur um stjórnunar- og verndaráætlunina fór fram þriðjudaginn 9. maí 2023. Kynningu frá fundinum má sjá hér.