Landverðir Umhverfisstofnunar munu bjóða upp á fjölbreytta fræðsludagskrá um allt land í sumar. Dagskrána má finna eftir svæðum hér fyrir neðan og á samfélagsmiðlum Náttúruverndarteymanna á Facebook og Instagram.
Dagskráin er fjölbreytt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Fræðslugöngurnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og það þarf ekki að skrá sig heldur bara mæta á staðinn.