Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi fyrir Fjarðabyggð til urðunar úrgangs í Þernunesi, Reyðarfirði.

Umhverfisstofnun auglýsti tillögu að starfsleyfi opinberlega á vefsíðu stofnunarinnar á tímabilinu 28. nóvember 2019 til og með 3. janúar 2020 og var gefinn kostur á skriflegum umsögnum um tillöguna á því tímabili. Engin umsögn barst um tillöguna.

Starfsleyfi þetta, sem gefið er út í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarnaeftirlit, laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og reglugerðar nr. 737/2003 um meðhöndlun úrgangs, öðlast þegar gildi og gildir til 06.02.2036.

Auglýsing þessi er birt á fréttavefsvæði Umhverfisstofnunar en auk þess í sérstökum dálk fyrir opinberar birtingar á starfsleyfum sem stofnunin gefur út.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá birtingu ákvörðunar Umhverfisstofnunar skv. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 4. gr. laga nr. 130/2011, um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.

Tengd skjöl: