Stök frétt

Mynd: Laxar Fiskeldi ehf.

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Laxa Fiskeldi ehf. Um er að ræða landeldi laxaseiða að Fiskalóni í Ölfusi þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 100 tonn. Laxar Fiskeldi ehf. hefur verið með 20 tonna leyfi og er því um stækkun á leyfi að ræða.

Að mati Umhverfisstofnunar munu helstu áhrif aukningarinnar vera í formi aukins magns næringarefna en dregið er verulega úr þeirri aukningu með notkun tromlusía þannig að nær eingöngu verður um uppleyst næringarefni sem rekstaraðili mun losa í umhverfið. Áætluð losun næringarefna verður undir þeim mörkum sem almennt er miðað við varðandi losun í ferskvatn.

Athugasemdir við starfsleyfistillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is). Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 12.  desember 2020. Greinargerð mun fylgja starfsleyfi við útgáfu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

Meðfylgjandi má sjá tillögu að starfsleyfi ásamt öðrum gögnum:
Tillaga að starfsleyfi
Umsókn um starfsleyfi
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
Áætlun um meðferð úrgangs