Veiði
Veiðikort
Skotveiðimenn skila veiðiskýrslum á skilavef Umhverfisstofnunar einu sinni á ári óháð því hvort eitthvað var veitt eða ekki. Þeir sem hafa gefið upp netfang fá sent í janúar lykilorð sem þeir nota til þess að skila skýrslunni og greiða fyrir veiðikortið. Ef þig vantar lykilorð geturðu sent tölvupóst á veidistjorn@ust.is og gefið upp kennitölu og netfang og beðið um að fá lykilorð sent. Með lykilorðinu er hægt að skrá sig inn á vefinn, skila veiðiskýrslu, gefa upp hvernig veiðikortið er greitt og í kjölfar greiðslu er veiðikortið sent. Veiðikort eru ekki send í póstkröfu.
Veiðikorthafar sem skila inn eftir 1. apríl þurfa að greiða 5.110 kr.
Ef veiðiskýrslu er skilað inn eftir 1.apríl hækkar gjaldið fyir veiðikortið úr 3.610 kr. upp í 5.110 kr. Athugið að sú viðbótarupphæð færist milli ára ef veiðikortið er ekki tekið. Ef þú varst búinn að skila veiðiskýrslu kemstu ekki aftur inn á skilavefinn. Þú getur þó séð þar hvað þú þarft að greiða fyrir veiðikortið og upplýsingar um greiðslumáta.




