SIEF

SIEF - Myndun upplýsingahópa

16.7.2010

Forskráningu efna hjá Efnastofnun Evrópu lauk 1. desember 2008. Næsta skref í REACH er þátttaka í upplýsingahópum (e. SIEF, Substance Information Exchange Forum) sem eru myndaðir af fyrirtækjum sem hyggjast skrá sama efnið. Upplýsingahóparnir skulu starfa til 1. júní 2018, þegar innleiðingarferli REACH lýkur. Það er á ábyrgð þeirra sem forskrá/skrá efnin að mynda upplýsingahópana, ekki Efnastofnunar Evrópu eða yfirvalda í hverju landi.

upplysingahopar_001Markmið upplýsingahópa er að miðla upplýsingum milli þeirra sem forskráðu/skráðu sama efni og koma þannig í veg fyrir óþarfa endurtekningar og ná fram sameiginlegri flokkun og merkingu á efninu. Hver upplýsingahópur skipar leiðandi skráningaraðila (e. Lead registrant) sem skráir efnið með samþykki hinna, þ.e. sendir upplýsingar um efna- og eðlisfræðilega eiginleika efnisins, flokkun þess og merkingu til Efnastofnunar Evrópu. Upplýsingar um magn og notkun efnis skal þó hver skráningaraðili senda fyrir sig (sjá 1.4 Skráning).

Allir skráningaraðilar eiga að taka þátt í þessum upplýsingahópum en eftirnotendum og þeim aðilum sem framleiða efnið í minna magni en 1 tonn á ári og þurfa þar af leiðandi ekki að skrá er einnig heimilt að taka þátt.

Þeir sem náðu ekki að forskrá efni fyrir 1. des 2008 og þurfa að fara Fyrirspurnarleiðina (sjá Skráning) fá einnig aðgang að upplýsingahópi efnisins en, öfugt við þá sem forskráðu, mega þeir ekki framleiða/flytja inn efnið fyrr en skráningarskýrslan er tilbúin.

Upplýsingahópurinn kemur sér saman um hvernig kostnaði við tilraunir skuli deilt niður á aðila innan hópsins. Efnastofnunin getur komið til aðstoðar með því að áætla mögulegan heildarkostnað.

Fyrstu skrefin

Fyrsta skref hvers fyrirtækis við myndun upplýsingahóps er að skoða hvaða önnur fyrirtæki forskráðu sama efni. Þær upplýsingar er að finna á sérstakri pre-SIEF síðu inni á REACH-IT, vefgátt Efnastofnunar Evrópu, sem notuð var við forskráninguna. Fyrirtæki sem forskráðu efni fara sjálfkrafa á lista á pre-SIEF síðunni undir því efni sem þau forskráðu.

Á pre-SIEF síðunni má finna almennar upplýsingar um efnið sem var forskráð auk upplýsinga um önnur svipuð efni, ef þau eru til, sem gætu nýst við áhættumat á efninu. Auk þess eru upplýsingar um fyrirtækið sem forskráði, t.d. um tengilið, fyrirsjáanlegan skráningarfrest, forskráningarnúmer og athugasemdir fyrir aðra þátttakendur í upplýsingahópnum. Til að hefja umræður eftir forskráningu, getur forskráningaraðili boðist til að gerast “umsjónarmaður” upplýsingahópsins (e. SIEF formation facilitator).

Hver skráningaraðili hefur möguleika á að taka ekki þátt í upplýsingahópi og senda allar sínar upplýsingar sér en þarf að hafa til þess gildar ástæður, s.s. að kostnaður við samsendingu upplýsinga sé of hár, að viðkvæmar atvinnuupplýsingar séu í hættu, eða að hann sé ekki sammála þeim upplýsingum sem sendar eru.

Efnastofnun Evrópu birtir á vefsíðu sinni lista yfir öll efni sem voru forskráð fyrir 1. des. 2008. Þar kemur fram heiti efnisins og einkennisnúmer (EINECS, CAS), svipuð efni ef þau eru til og fyrirsjáanlegur skráningarfrestur.

Skjöl

 






Leit


Útlit síðu:

þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.